
Pop Up
Til að halda sköpunargleðinni á lofti bjóðum við reglulega upp á Pop Up vörur sem færa úrvalinu nýjan og spennandi blæ. Við leggjum einnig metnað í sérvörur sem tengjast árstíðum, hátíðum og öðrum tilefnum.
Bleiki dagurinn
Á hverju ári tökum við þátt í Bleika deginum. Hluti af sölu allra bleikra vara okkar rennur til Krabbameinsfélagsins og styður þannig mikilvægt starf þess. Af því tilefni fá vörurnar okkar bleika yfirhalningu og allt bakaríið klæðist bleikum búning.































